Hversu margir þurfa að samþykkja ákvörðun á húsfundi
Það vefst oft fyrir eigendum fjöleignarhúsa að átta sig á því hversu margir eigendur þurfa að samþykkja tiltekna ákvörðun til að hún sé lögmæt. Þetta er skiljanlegt því reglur laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús um þetta efni eru margar og flóknar og algengt að túlkun þeirra valdi ágreiningi milli eigenda í fjöleignarhúsum. Í 41. gr. laganna er að finna reglur um töku einstakra ákvarðana og vægi atkvæða, en um ákvarðanirnar sem slíkar og efni þeirra er fjallað á öðrum stöðu












