Gallar í nýbyggingum
Síðustu rúmu 20 árin hefur verið töluvert um galla í nýbyggingum. Fæst þessara mála rata inn á borð dómstóla. Ástæðurnar eru margar, svo sem það semst í málunum að einhverju leyti eða öllu, það er ekkert á neinn að sækja eða kröfurnar eru fyrndar. Seljendur nýbygginga eru oftast félög sem byggja sjálf eða félög sem fá aðra til að byggja fyrir sig. Sumir byggja mörg hús og selja á sömu kennitölunni en aðrir nota margar kennitölur, stundum eina fyrir hvert hús. Auðvitað getur ý


Aðalfundir húsfélaga
Húsfélög eru nú í óða önn að undirbúa eða halda aðalfundi, en aðalfundi á að halda ár hvert fyrir lok aprílmánaðar. Fannst mér því tilvalið að taka saman nokkur hagnýt atriði sem hafa ber í huga við slíka fundi. Fyrsta skrefið er að ákveða hvenær og hvar fundurinn er haldinn og passa upp á að fundarboðið sé sent út með nægum fyrirvara fyrir fundinn. Það eru ákveðin lögbundin verkefni sem á að taka fyrir á aðalfundum en hægt er að setja fleiri mál á dagskrá. Þarf að gæta þe


Hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum
Í lok síðasta árs tóku gildi breytingar á lögum um fjöleignarhús varðandi hunda- og kattahald. Samkvæmt lögunum er hunda- og kattahald nú heimilt og þarf ekki lengur samþykki meðeigenda fyrir því. Ekki er lengur gerð krafa um að eigandi láti húsfélagi í té ljósrit af leyfi viðkomandi sveitarfélags. Hundar og kettir mega þó ekki vera í sameign eða á sameiginlegri lóð nema þegar verið er að færa dýrin að og frá séreign og eiga hundar alltaf að vera í taumi og í umsjá manns sem


Sáttamiðlun í fasteignamálum
Ágreiningsmál sem tengjast fasteignum eru margvísleg, svo sem milli kaupanda og seljanda vegna galla í fasteignum, milli eigenda í fjöleignarhúsum, milli leigusala og leigjanda og milli aðila versksamnings vegna viðhaldsframkvæmda. Oft bera ágreiningsmál sem lúta að fasteignum illa þann kostnað sem leiðir af langvarandi ágreiningi. Dómsmál sem kunna að rísa út af slíkum ágreiningi geta tekið langan tíma og verið kostnaðarsöm. Sáttamiðlun í slíkum málum getur verið góður valko








