Breytingar á sameign sem ekki hefur verið gert ráð fyrir í upphafi og á samþykktri teikningu
Í 30. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús (skammstafað fehl.) er fjallað um byggingar og breytingar sem ekki hefur verið gert ráð fyrir í upphafi og á samþykktri teikningu. Sé um verulega breytingu á sameign að ræða er áskilið samþykki allra eigenda, en ef breyting er ekki veruleg nægir samþykki aukins meiri hluta. Til smávægilegra breytinga nægir þó að einfaldur meiri hluti sé meðmæltur. Ákvæðið hljóðar svo: Aðrar byggingar og breytingar. 30. gr. Sé um byggingu, endurb
